Já ég er næturdýr, enn og aftur!! Er búin
að vera á næturvöktum í þessari viku og virðist ekki geta
kúplað mig út úr því dæmi!! Kannski engin ástæða fyrir því
neitt endilega akkurat núna því ég fer aftur á næturvakt
annað kvöld! 
Minn elskulegi sími ákvað að yfirgefa þennan heim
í gærkvöldi og neitaði að kveikja á sér!! Hata tæki, síma, tölvur,
myndavélar, allt þetta drasl, það endar alltaf með því að
bila!! Held að þetta sé svona bilunarbylgja að fara í gang!! Fyrst
byrjaði myndavélin á því að bila...síðan er ipodinn minn alveg að
gefa upp öndina, nú er það síminn og næst verður það örugglega
blessuð tölvan!! Ég er ekki einusinni búin að eiga þennan síma í
ár!! Usss!! og síðan fór ég með hann í viðgerð í dag og neinei þá
er ENGINN lánssími til! Lélega ljóta ogvodafone
skítafyrirtæki!! Nú þarf ég að vera símalaus í heila viku!! Veit
ekki hvort ég muni lifa það af! Ef einhver er svo elskulegur að
eiga gamlan síma í skúffunni heima sem hann getur lánað
mér þá væri ég rosa þakklát!! Annars ef þið þurfið að ná í
mig þá er það bara msn....
Annars er ég loksins búin að klára verknámið sem
var fínasta afþreying og síðan á mánudag byrjar skurð-og
svæfingarverknámið, get ekki beðið!! Fór einmitt í kynningu í dag
og vá! hvað þetta er heillandi, sjett mig langar bara að ryðjast
inn og fá að skera í einhvern!!
Ef ég kemst einhverntímann inn í
læknisfræðina þá eru skurðlækningar alveg uppi á teningnum!! Ehmm
já annars er maður bara búinn að vera að hvíla sig/vinna þessa viku
og klára verkefni. Svo á ég nú reyndar stærstu ritgerðina mína
eftir sem ég á að skila eftir 3 daga og ég er ekki enn byrjuð,
skamm skamm Dúnna!! En eins og ég segi þetta reddast
alltaf!!
Núna bíður maður líka spenntur eftir því að
komast í langþráð páskafrí heim á Ísafjörð og sletta ærlega úr
klaufunum
Og líka þar sem ber hæst er að Edith sæta ætlar að
vinna þessa bjútíkeppni 4. apríl, það er alveg á hreinu!!
Allir muna að kjósa!!!
Hey var að uppgötva nýja þætti...því ég er svo
mikið þáttafrík, er búin að vera að skemmta mér vel yfir þáttunum
Dirt sem sýndir eru núna með Courtney Cox í
aðalhlutverki, mæli með þeim!!
until next time...